Fylgi Sjálfstæðisflokksins

Minn gamli flokkur fær ekki sitt gamla fylgi aftur fyrr en tvennt liggur fyrir:

-  Trúverðug stefna flokksins til endurreisnar, þar með talið peningastefna og Evrópuaðild; flokkurinn nær sér ekki á strik og verður ekki trúverðugur sem flokkur efnahagsframfara fyrr en hann hefur fallist á að sækja skuli um aðild að Evrópusambandinu og bera samning um aðild undir atkvæði þjóðarinnar, með stuðningi Sjálfstæðisflokksins!!

-  Flokkurinn þarf að gera upp við fortíðina, gera upp við tengsl sín við hagsmunagæslu fyrir sérhagsmunahópa og tengsl sín við stórfyrirtækin, samanber styrkina sem hafa komið uppá yfirborðið undanfarna daga.

Þegar þessi skref hafa verið stigin geta almennir kjósendur aftur trúað því að Sjálfstæðisflokkurinn beri hagsmuni okkar venjulegra kjósenda fyrir brjósti.


mbl.is „Hvítþvegin bleyjubörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur á leið úr landi

Nú er að hefjast alvöru kreppa á Íslandi: 

Blómleg fyrirtæki sem hafa skotið rótum munu fara úr landi vegna ákvarðanafælni íslenskra stjórnmálamanna; Össur er fyrst sýnist manni, svo fer Marel, Actavis og svo framvegis.  Fólk annað hvort fer með eða missir vinnuna.

Eina leiðin til að stoppa þessa þróun er að sækja tafarlaust um aðild að ESB!!


mbl.is Viðskipti stöðvuð með Össur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komið vor?

Nú fer að koma hjólatími - ekki það að maður hafi ekki hjólað talsvert í vetur en það hefur bara veríð í sandbrautum í Þorlákshöfn og Þykkvabæ (www.fjaran.com) en nú er komin endurolykt í loftið, Husaberg kominn í fullkomið lag og allt í lagi að hætta að grenja yfir pólitík og kreppu og kíkja aðeins út úr skúrnum, sjá hvort ræktin í vetur skilar einhverju....  LoL

Til að hita okkur aðeins upp, tékkið á þessu videoi frá Knigternum, maðurinn er rosalegur.  Ég pant hjóla svona..........

Passið samt að jörðin er enn of blaut til að hjóla nema á hörðustu slóðum - allt sem heitir mold er bannað enn sem komið er.  Við feðgar stefnum í Þorlák um helgina, Jói krossari næst ekki úr krossbrautinn reikna ég með en ég ætla að tékka á nýju enduroslóðunum kringum Þorlákshöfn.  Verð að hrósa sveitarfélaginu Ölfusi mjög, þeir hafa lagt gríðarlega mikið til málanna í baráttunni gegn utanvegaakstri hjólafólks með því að afhenda ungmennafélaginu þarna þetta svæði til viðbótar við krossbrautina - held þetta séu 200 hektarar sem við endurokallar fáum til umráða og Þorlákshafnarmenn hafa til að leggja slóðir.

Muna bara að fara í skálann í Þorlákshöfn og kaupa miða inná svæðið.

Hjólahjóla!!


Þetta er alveg jafn mikilvægt og frumvarp um sölu áfengis í matvöruverslunum...

Þegar fyrri ríkisstjórn lagði fram frumvarp um sölu áfengis í matvöruverslunum í stað þess að ræða efnahagsmál og leysa vandamál heimilanna fór allt á annan endann.

Ég myndi halda að það ætti allt að verða vitlaust núna líka, því þetta er ekki eitt þeirra þjóðþrifamála sem þurfa að komast í gegnum þingið.

Hvar eru aðgerðapakkar vinstrimanna fyrir skuldsett heimili?


mbl.is Kaup á vændi verði refsivert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nokkur hætta á að L-listinn komist að?

Hver er þessi stórkostlega hætta fyrir sjálfstæðið, sem felst í því að ganga í ESB?

Sér þetta L-lista fólk, sem ég reyndar veit ekki hverjir eru, að sjálfstæði okkar ER farið veg allrar veraldar og Íslendingar eru fastir í skuldafjötrum?  Eina leiðin út úr þessu er að ganga í ESB, taka upp Evruna og gerast þjóð á meðal þjóða.  Þannig næst bæði þjóðhagslegur sparnaður og aukinn hagvöxtur, sem samanlagt dugar til að leysa okkur úr skuldafangelsinu og gera okkur aftur að efnahagslega sjálfstæðri þjóð.

Þau rök að aðildarferlið sé svo langt að þetta gagnist okkur ekki halda ekki vatni, því með því að sækja um aðild undirgöngumst við ákveðið afmarkað ferli sem býr til stöðugleika, öryggi og framtíðarsýn; þetta er fyllilega viðurkennt og margrætt.

Það sjálfstæði sem L-listinn og aðrir andstæðingar ESB vilja halda í er sjálfstæði Bjarts í Sumarhúsum - annars vegar gjaldþrota einbúi upp til fjalla og hins vegar gjaldþrota eyþjóð einangruð norður í ballarhafi.  Ég trúi því ekki að það sé sú framtíð sem Íslendingar ætla sínum börnum.


mbl.is L - listi varar við ESB slagsíðu flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða leið viljum við?

Viljum við leiðina sem Steingrímur boðaði á Viðskiptaþingi í vikunni, að við munum halda krónunni og stunda þar með sjálfsþurftarbúskap með flests fyrirtæki í ríkiseigu gegnum eignarhald ríkisins á bönkunum, eða viljum við taka aftur stefnu á að vera þjóð á meðal þjóða.

Það síðarnefnda gerist ekki nema gegnum aðildarferli að Evrópusambandinu.


mbl.is Evra eða lokaður markaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt Þorgerður!!

Þetta er sú afgerandi afstaða sem nauðsynleg er og kallað hefur verið eftir!

Nú þarf landsfundur að standa sig svo við fáum ekki yfir okkur vinstri stjórn.


mbl.is Verðum að hefja aðildarviðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Politíkusar - hlustið á þetta!

Af hverju hlusta pólitíkusarnir ekki á þetta?

Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, að minsta kosti hluti útgerðarinnar, allir sem þekkingu hafa á efnahagsmálum segja þetta einu skynsamlegu leiðina fyrir Ísland.

Ætla menn að láta Samfylkinguna eina um að berjast fyrir þessum mikilvægustu hagsmunum okkar Íslendinga?


mbl.is Viðskiptaráð: Raunverulegir kostir fylgja ESB aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB - stærsta kosningamálið

Nú taka línur heldur að skýrast í þessu stærsta hagsmunamáli okkar Íslendinga; án aðildarumsóknar að ESB mun endurreisn íslensks efnahagslífs EKKI takast.

Bjarni Ben fær mitt atkvæði en Pétur Blöndal alls ekki! 

Nú er það spurning hvort sjónarmiðið verður ofaná á landsfundi því byggt á því mun ég taka ákvörðun um hvað ég kýs í komandi kosningum.  Endurreisnarnefndin og þeir sem stýra starfi hennar verða að tryggja að niðurstöður starfsins verði nægilega afgerandi til að flokksmenn geti gert upp hug sinn.

 


mbl.is Ný ríkisstjórn um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég kallaður landráðamaður og föðurlandssvikari

http://alit.blog.is/blog/alit/entry/821153/#comment2253603

Það er alveg með ólíkindum hvað fólk leyfir sér í Evrópu-umræðunni.  Málin eru annað hvort alveg svört eða alveg hvít og við erum annað hvort alsæm eða algóð.

Ég er víst alslæmur - hef oft verið það og get alveg lifað við það Devil

Ég mun samt ekki fara niður á sama plan og andstæðingar ESB-aðildar gera í sinni umfjöllun um mig og málefnið.  Þessi mál eru samt í einhverjum gráum tónum, eins og flest annað - engar töfralausnir heldur verðum við að velja skynsamlegustu leiðina miðað við aðstæður.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband